Samband íslenskra bænda og íslenskra neytenda er einstakt og náið. Það byggir á trausti, heiðarleika og greinargóðum upplýsingum. Að þessu sambandi vilja sauðfjárbændur hlúa. Mikilvægur þáttur í því er að tryggja að neytendur fái réttar og greinargóðar upplýsingar um innhald vöru og framleiðsluhætti. Á aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda í lok mars var samþykkt sérstök neytendastefna samtakanna, en þetta er í fyrsta skipti sem það er gert. Yfirskrift hennar er Okkar afurð – okkar mál. Stefnunni má skipta í fjóra meginþætti: Bætta upplýsingagjöf til neytenda, sérstaka neytendavernd fyrir börn, aldraða og sjúklinga, bætt eftirlit í þágu neytenda og siðlega innkaupastefnu hins opinbera.
Continue reading “Neytendur eiga rétt á að vita!”
64.963051-19.020835